Makye Richards Njarðvík20,2
Efstur á blaði er bandarískur bakvörður sem hefur skorað hvar sem hann hefur komið: 31 stig í leik í Sýrlandi, 27,7 í Kúveit, 21,7 í Katar og á síðasta tímabili 20,8 í efstu deild Líbanons, áður en hann skipti í febrúar yfir í næstefstu deild Grikklands (16,0). Líkanið metur líbönsku deildina álíka sterka og þær deildir sem erlendir leikmenn koma venjulega úr hingað, og þar lék hann 37 mínútur í leik. Þess vegna skilar tímabilið sér nær óskert yfir í spána. Spurningin, að mati líkansins: „the big question is whether his scoring holds up against better defenders". Lægri endi bilsins, um 15 stig, er raunhæf útkoma ef tölurnar frá Mið-Austurlöndum reynast uppblásnar.


